Ánni er skipt í þrjú svæði og er slóði að hverju svæði. Hvert svæði er um 2.5 km langt og góðir veiðistatðir á þeim öllum.
Mælt er með því að skilja bílinn eftir við efsta stað og veiða sig niður hvert svæði. Auðveld ganga er meðfram ánni.
Ef menn treysta veiðifélögunum fyrir bílunum sínum getur verið snjðugt að þeir sem eiga efsta svæðið fái far upp á efsta veiðistað og veiði sig niður svæðið. Þar bíður bíll sem skilinn var eftir af þeim sem áttu miðsvæðið. Þeir sem eiga miðsvæðið geta þá veitt sig niður sitt svæði og tekið bíl þeirra sem áttu neðsta svæðið. Þeir sem eiga neðsta svæðið byrja á sínum efsta veiðistað og veiða sig svo alla leið niður í veiðihús.
Heilráð leiðsögumannsins
Deildará er fullkomin fyrir léttar einhendur, þyngdir 5-6. Gott stórlaxahlutfall er í ánni og getur verið magnað að eiga við þá með réttan veiðibúnað.
Green Butt
reynist gjarnan vel
Langir taumar og smáar flugur gefa oft góða raun. Gárutúpur hafa reynst afar vel og magnað að sjá laxinn koma eins og tundurskeyti á fleygiferð úr hylnum á eftir flugunni.
Collie Dog
Eitt öflugasta vopnið í boxinu
Standi til að sleppa laxi geta hnútalausir háfar komið sér vel. Í veiðihúsinu eru geymdir slíkir háfar og er gestum árinnar velkomið að fá þá lánaða meðan á veiði þeirra í Deildará stendur.